Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 363
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lagt fram bréf náttúruverndarstofnunar, dags. 4. nóvember 2025 vegna friðlýsingar Grafarvogs, friðlýsingarskilmálar, kort með afmörkun svæðisins og greinargerð um athugasemdir sem bárust á kynningartíma. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu: Lagt er til ráðist verði í að færa út mörk þess verndarsvæðis, sem fyrirhugað er að friðlýsa í Grafarvogi, í samræmi við tillögu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá 20. júní 2023. Samkvæmt umræddri tillögu ráðuneytisins myndi verndarsvæðið fylgja göngustíg í norðanverðum Grafarvogi en teygja sig jafnframt inn á skógræktarsvæði við Funaborg. Þaðan fylgdu mörkin göngustíg í átt að Stórhöfða en síðan lóðamörkum meðfram götunni til og með Stórhöfða 45. Þaðan með Stórhöfða að Grafarlæk, síðan meðfram læknum (50-100 metra), og síðan með göngustíg. Málsmeðferðartillagan er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði með málferðartillögunni. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. Upphafleg tillaga er samþykkt.
Svar

Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalista og Vinstri grænna kjósi að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins um að rýmka mörk þess verndarsvæðis, sem fyrirhugað er að friðlýsa í Grafarvogi. Í fyrirliggjandi tillögu vinstri meirihlutans er miðað við mun þrengri mörk. Um er að ræða afar stórt skipulagsmál, sem snertir íbúa í Grafarvogi og nærliggjandi hverfum enda er vogurinn afar vinsælt útivistarsvæði. Þessi afstaða meirihlutans gengur í berhögg við afstöðu Íbúaráðs Grafarvogs, Íbúasamtaka Grafarvogs sem og afstöðu flestra þeirra Grafarvogsbúa, sem hafa tjáð sig um málið. Afgreiðsla málsins sýnir að háleitar yfirlýsingar vinstri flokkanna um umhverfisvernd og íbúasamráð eru innantómar og merkingarlausar.
Lögð fram svohljóðandi gagnbókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Því ber að halda til haga að markmiðum um náttúruvernd í Grafarvogi er náð með tillögunni eins og hún var til afgreiðslu. Halda skal til haga að Náttúrufræðistofnun mælir ekki með því að svæðið væri stækkað með þeim hætti sem hér var lagt til.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn fagnar því að nú sé búið að afgreiða friðlýsingu Grafarvogs. Mikilvægt er að þessum áfanga er lokið til að vernda voginn sem er stórt varpsvæði fugla sem og vinsælt útivistarsvæði. Einnig mun friðlýsingin koma til með að eyða óvissu um framtíðar uppbyggingu í nálægð við voginn.