Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 339
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á vinnu við friðlýsingu Grafarvogs. Lagt er til að ráðið staðfesti áframhaldandi vinnu sbr. tillögu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi breytingartillögu: Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkir að unnið skuli að því að færa út mörk þess verndarsvæðis sem fyrirhugað er að friðlýsa í Grafarvogi í samræmi við tillögu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá 20. júní 2023. Samkvæmt umræddri tillögu ráðuneytisins myndi verndarsvæðið fylgja göngustíg í norðanverðum Grafarvogi en teygja sig jafnframt inn á skógræktarsvæði við Funaborg. Þaðan fylgdu mörkin göngustíg í átt að Stórhöfða en síðan lóðamörkum meðfram götunni til og með Stórhöfða 45. Þaðan með Stórhöfða að Grafarlæk, síðan meðfram læknum (50-100 metra), og síðan með göngustíg. Breytingartillaga er felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu breytingartillögu. Tillaga samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokki fólksins. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og Vinstri grænna leggja leggja fram svohljóðandi bókun: Að frumkvæði Reykjavíkurborgar var farið af stað með friðlýsingu Grafarvogs í mars 2021. Málið hefur fengið faglega og vandaða umfjöllun Náttúrufræðistofnunar. Nú er komið að samþykkt friðlýsingarinnar með þeirri breytingu að mörk friðlýsingarsvæðisins eru víkkuð lítillega frá fyrri áformum að ráðgjöf sérfræðinga. Verndun Grafarlæks verður svo skoðuð sérstaklega í samhengi við skipulagsvinnu Keldnalandsins. Við fögnum þessum áfanga og samþykkjum með ánægju tillögu að afmörkun friðlýsingarinnar. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun: Við hörmum að fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalista, Flokks fólksins og Vinstri grænna kjósi að fella tillögu Sjálfstæðisflokksins um að rýmka mörk þess verndarsvæðis, sem fyrirhugað er að friðlýsa í Grafarvogi, en hingað til hefur verið miðað við af hálfu Reykjavíkurborgar. Um er að ræða afar stórt skipulagsmál, sem snertir íbúa í Grafarvogi og nærliggjandi hverfum enda er vogurinn afar vinsælt útivistarsvæði. Þessi afstaða meirihlutans gengur í berhögg við afstöðu Íbúaráðs Grafarvogs, Íbúasamtaka Grafarvogs sem og afstöðu flestra þeirra Grafarvogsbúa, sem hafa tjáð sig um málið. Athyglisvert er að atkvæði fulltrúa Flokks fólksins gengur gegn fyrri afstöðu flokksins í málinu, sem hefur hingað til stutt víðari verndarmörk en borgin hefur miðað við. Afgreiðsla málsins sýnir að háleitar yfirlýsingar vinstri flokkanna um umhverfisvernd eru innantómar og merkingarlausar.