Hampiðjureitur - Breyting á deiliskipulagi - Mjölnisholt 6 og 8
Mjölnisholt 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1001
20. febrúar, 2025
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Arctic Tours ehf. , dags. 28. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 6 og 8 við Mjölnisholt. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóða og stækkun byggingarreits, ásamt aukningu á byggingarmagni og hærra nýtingarhlutfalli svo koma megi fyrir nýju utanáliggjandi þriggja hæða stigahúsi á baklóð húsanna, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta, dags. 15. desember 2024. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa, dags. 10. desember 2024. Erindið var grenndarkynnt frá 15. janúar 2025 til og með 12. febrúar 2025. Athugasemdir bárust frá Veitum.
Vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra.