Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Arctic Tours ehf.
, dags. 28. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðanna nr. 6 og 8 við Mjölnisholt. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóða og stækkun byggingarreits, ásamt aukningu á byggingarmagni og hærra nýtingarhlutfalli svo koma megi fyrir nýju utanáliggjandi þriggja hæða stigahúsi á baklóð húsanna, samkvæmt uppdr. Trípólí arkitekta, dags. 15. desember 2023, br. 27. febrúar 2025. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa, dags. 10. desember 2024. Erindið var grenndarkynnt frá 15. janúar 2025 til og með 12. febrúar 2025. Athugasemdir bárust frá Veitum. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2025 og er nú lagt fram að nýju.
Samþykkt með vísan til heimilda, sbr. heimildir um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka 2.3. við samþykktum stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.