Hlíðarendi - Breyting á deiliskipulagi - Reitur A - Arnarhlíð 3
Arnarhlíð 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 992
5. desember, 2024
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Hlíðarenda ses, dags. 27. júní 2023, ásamt greinargerð Alark arkitekta ehf. , dags. 16. september 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 3 við Arnarhlíð. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjölga íbúðum, fella niður göng undir Flugvallarveg, auka byggingarmagn á jarðhæð, auka hlutfall 5. hæðar af stærð 4. hæðar, koma fylgilóðum vegna djúpgáma fyrir í borgargötum, breyta lóðastærð, mörk skipulagssvæðis færast að lóðamörkum, útbyggingar eru ávarpaðar og leikskólahugmyndir á lóð eru felldar niður, samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skuggvarpsuppdráttum Alark arkitekta, dags. 27. ágúst 2024 og 16. september 2024, og sólarljósaútreikningum af dvalarsvæði. Einnig er lagt fram uppfært samgöngumat samkvæmt minnisblaði VSÓ ráðgjafar, dags. 18. september 2024. Tillagan var auglýst frá 17. október 2024 til og með 28. nóvember 2024. Ábendingar og umsagnir bárust.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

102 Reykjavík
Landnúmer: 220842 → skrá.is
Hnitnúmer: 10106170