Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2023 var lögð fram umsókn Hlíðarenda ses, dags. 27. júní 2023, ásamt greinargerð
Alark arkitekta ehf.
, dags. 16. september 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðarinnar nr. 3 við Arnarhlíð. Í breytingunni sem lögð er til felst að fjölga íbúðum, fella niður göng undir Flugvallarveg, auka byggingarmagn á jarðhæð, auka hlutfall 5. hæðar af stærð 4. hæðar, koma fylgilóðum vegna djúpgáma fyrir í borgargötum, breyta lóðastærð, mörk skipulagssvæðis færast að lóðamörkum, útbyggingar ávarpaðar og leikskólahugmyndir á lóð eru felldar niður, samkvæmt deiliskipulags-, skýringar- og skuggvarpsuppdráttum Alark arkitekta, dags. 27. ágúst 2024 og 16. september 2024, og sólarljósaútreikningum af dvalarsvæði. Einnig er lagt fram uppfært samgöngumat samkvæmt minnisblaði VSÓ ráðgjafar, dags. 18. september 2024. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á því að áður en kemur til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi að greiða skv. 7.5. gr. gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1276/2023.