Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 322
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á minnisblaði Eflu, dags. 27. júní 2024, um tillögur til að efla deilibíla í Reykjavík. Fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: Við þökkum fyrir kynningu á skýrslu um leiðir til efla deilibílaþjónustu í Reykjavík sem hefur verið í vinnslu síðastliðið ár. Næsta skref er að senda þessar hugmyndir til umsagnar rekstraraðila og fulltrúa notenda og vinna upp úr því endanlegar aðgerðir. Gott er að taka líka inn í þessa skoðun þær hugmyndir sem komu fram í kynningu fyrr á fundinum. Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun: Hugsjónin um deilihagkerfi er af hinu góða, það má þó ekki gleymast að styðja við og hvetja til þess að það skapist á samfélagslegum forsendum, í anda Munasafnsins og „carpooling“ eins og það þekkist erlendis. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Í gögnum málsins er lýst hversu erfitt er að innleiða deilibíla og mun það krefjast mikils stuðnings í styrkjaformi til að eitthvað gangi s.s. að þær bifreiðar sem ganga fyrir rafmagni eða öðrum hreinum orkugjafa séu undanþegnar bílastæðagjaldi o.s.frv. Mikið þarf að koma til ef deilibílakerfi á að virka hér í Reykjavík og velta má því upp að mati Flokks fólksins hvort það sé þess virði. Verið að að leggja til hér að borgað sé umtalsvert með þessu kerfi og að styrkupphæð á hvern deilibíl verði allt að 50.000 kr. á mánuði, þó aldrei meira en 500.000 kr. á 12 mánaða tímabili. Það er þess vegna mat Flokks fólksins að það sé varla hægt að reikna með slíku kerfi á næstunni og spurning hvort það sé jafnvel verjandi ef greiða þarf svo mikið með kerfinu. Í Berlín búa um 3,5 milljónir. Þar eru 2000 deilibílar. Með sama árangri gætu verið um 80 deilibílar í Reykjavík og varla telst það vera bylting í umferðarmálum borgarbúa í ljósi þess að bílum er að fjölga hratt, eða um 60 á viku.