Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 322
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á smáfarartækjum og deilibílum í Reykjavík. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: Við þökkum fyrir gagnlegar kynningar frá rekstraraðilum smáfarartækja og rafbíla í borgarlandinu og gott samtal. Rafskútur eru hluti af samgöngubyltingu í okkar samfélagi. Þetta er nýtt farartæki sem við erum enn að læra á. Við leggjum ríka áherslu á gott samtal við rekstraraðila um forvarnir og innviði. Við viljum fjölga rafskútustæðum, sér í lagi nálægt strætóskýlum og hjólastígum, til að koma í veg fyrir að rafskútum sé illa lagt. Tillaga um slíka fjölgun er í undirbúningi hjá skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. Við hvetjum til þess að leiðir verði skoðaðar til að draga úr slysatíðni, en viljum standa vörð um rafskúturnar sem samgöngutæki. Rafbílar skipta líka máli og við viljum vinna með þær úrbótahugmyndir sem komu fram. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Rafhlaupahjól eða öllu heldur rafskreppur eins og betra er að kalla þessi farartæki hafa verið bannaðar í sumum borgum t.d. París. Þar sem rafskreppur eru leyfðar verður að vera meira regluverk í kringum þær og skoða af alvöru að setja aldurstakmark á þær t.d. að fólki yngra en 18 ára verði óheimilt að fara um á rafhlaupahjólum, nái þau meira en 25 kílómetra hraða. Leigurnar þyrftu sjálfar að beita sér og að ýta við löggjafanum til að fá betra regluverk í kringum skreppurnar og að sett verði á aldurstakmark. Vandamálið er ekki síst að skreppurnar er skildar eftir á gangstéttum miðjum, hjólastígum í andstöðu við lögin. Þetta eru regluleg og ítrekuð tilfelli og kerfisbundið ástand. Slys eru tíð. Fjórðungur allra alvarlegra slysa í umferðinni verða á skreppum. Fram hefur komið í fréttum að Endurhæfingardeild Grensáss tekur á móti alvarlegustu tilfellunum; fólki með mænu- og heilaskaða og sumir ná sér aldrei til fulls. Á sama tíma og innreið rafskreppa markaði ákveðna byltingu í samgöngum fór hópur þeirra sem slasast alvarlega í umferðinni að taka miklum breytingum. Fyrstu slysin á skreppum voru skráð árið 2020 og hlutdeild þeirra í slysatölum hefur vaxið hratt. Faraldur rafhlaupahjóla slysa er staðreynd og sem nálgast tuginn á hverjum sólarhring.