Reitur 1.161 - Kirkjugarðsstígur, Garðastræti, Túngata og Suðurgata - breyting á deiliskipulagi - Suðurgata 6
Suðurgötu 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 984
10. október, 2024
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. maí 2024 var lögð fram umsókn Alternance slf. , dags. 22. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.161, Kirkjugarðsstígur, Garðastræti, Túngata og Suðurgata, vegna lóðarinnar nr. 6 við Suðurgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að gera upp gamla húsið með því að færa það í átt að upprunalegu formi. Heimilt verði að fjarlæga viðbyggingu sem gengur inn í gamla húsið og endurgera kvisti í stíl við það upprunalega. Auk þess verði heimilt að gera bakbyggingu og tengigang milli húsanna og kjallara undir nýbyggingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti Alternance slf. dags. 2. febrúar 2024. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdrættir Alternance slf. dags. 30. september 2023 og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. ágúst 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.