Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. desember 2023 var lögð fram umsókn
Alternance slf.
, dags. 22. júní 2023, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.161, Kirkjugarðsstígur, Garðastræti, Túngata og Suðurgata, vegna lóðarinnar nr. 6 við Suðurgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að gera upp gamla húsið með því að færa það í átt að upprunalegu formi. Heimilt verði að fjarlæga viðbyggingu sem gengur inn í gamla húsið og endurgera kvisti í stíl við það upprunalega. Auk þess verði heimilt að gera bakbyggingu og tengigang milli húsanna og kjallara undir nýbyggingu, samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti
Alternance slf.
dags. 2. febrúar 2024. Einnig eru lagðir fram skuggavarpsuppdrættir
Alternance slf.
dags. 30. september 2023 og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 17. ágúst 2022. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.