Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júlí 2023 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í breytingum á gluggum, hækkun einnar innkeyrsluhurðar, fjölgun inngangshurða, fjölgun glugga, færsla og breyting á stiga innanhúss upp á millipall, breyting á innra skipulagi millipalls og 1. hæðar, jafnframt er sótt um leyfi til breytinga á innra skipulagi í rými 0101 og 0102, matshluta 01 í húsi nr. 24 við Fiskislóð.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.