Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. júlí 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júlí 2023 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í breytingum á gluggum, hækkun einnar innkeyrsluhurðar, fjölgun inngangshurða, fjölgun glugga, færsla og breyting á stiga innanhúss upp á millipall, breyting á innra skipulagi millipalls og 1. hæðar, jafnframt er sótt um leyfi til breytinga á innra skipulagi í rými 0101 og 0102, matshluta 01 í húsi nr. 24 við Fiskislóð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.