Suðurfell - þróunarsvæði í suðausturhluta Fellahverfis - skiplagslýsing
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 931
7. september, 2023
Annað
Fyrirspurn
Suðurfell - þróunarsvæði í suðausturhluta Fellahverfis - skipulagslýsing - USK23050217 Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. í maí 2023, vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir þróunarsvæði við Suðurfell. Skipulagslýsingin tekur til þróunarsvæðis í suðausturhluta Fellahverfis. Tilgangur skipulagslýsingarinnar er að greina frá svæðinu, áherslum og markmiðum við skipulagsgerðina, forsendum sem liggja að baki og fyrirhuguðu skipulagsferli. Um er að ræða óbyggt svæði sem liggur austan við Fellahverfi í efra Breiðholti og nær að mörkum Elliðaárdals. Aðkoma að svæðinu er um Suðurfell og liggja göngustígar og hjólastígar um svæðið sem tengjast göngustígakerfi Elliðaárdals. Í nýju deiliskipulagi verður gert ráð fyrir lágreistri íbúðarbyggð, 1-2 hæðir, með 50-75 íbúðum. Byggð skal aðlagast vel að landi og mynda sólrík og skjólgóð útisvæði fyrir íbúa. Opin svæði og stígar/hjólastígar skulu mynda góða tengingu milli eldri byggðar handan Suðurfells og hinnar nýju byggðar, og jafnframt við útivistarsvæði Elliðaárdals. Gert er ráð fyrir að halda í opið svæði innan þróunarsvæðisins líkt og skilgreint er í aðalskipulagi 2040 en opna á möguleika við að skilgreina það á nýjan hátt með komandi deiliskipulagi. Lýsingin var kynnt frá 27. júlí 2023 til og með 31. ágúst 2023. Eftirtaldir sendu umsagnir/athugasemdir: Ingveldur Halla Kristjánsdóttir dags. 3. ágúst 2023, Snorri Magnússon dags. 3. ágúst 2023, Eiður Sveinn Gunnarsson dags. 3. ágúst 2023, Minjastofnun Íslands dags. 4. ágúst 2023, Margrét Stefanía Þorkelsdóttir dags. 4. ágúst 2023ágúst 2023, Ása Elísa Einarsdóttir 6. ágúst 2023, Sigurður Bragason dags. 7. ágúst 2023, Katrín Helga Guðjónsdóttir dags. 7. ágúst 2023, Katrín María Sigurðardóttir, dags. 9. ágúst 2023, Fríða Björg Aðalsteinsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Guðmundur Björgvin Svafarsson, dags. 9. ágúst 2023, Valgerður Jóna Garðarsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Elínborg Auður Hákonardóttir, dags. 9. ágúst 2