Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. í maí 2023, vegna gerð nýs deiliskipulags fyrir þróunarsvæði við Suðurfell. Skipulagslýsingin tekur til þróunarsvæðis í suðausturhluta Fellahverfis. Tilgangur skipulagslýsingarinnar er að greina frá svæðinu, áherslum og markmiðum við skipulagsgerðina, forsendum sem liggja að baki og fyrirhuguðu skipulagsferli. Um er að ræða óbyggt svæði sem liggur austan við Fellahverfi í efra Breiðholti og nær að mörkum Elliðaárdals. Aðkoma að svæðinu er um Suðurfell og liggja göngustígar og hjólastígar um svæðið sem tengjast göngustígakerfi Elliðaárdals. Í nýju deiliskipulagi verður gert ráð fyrir lágreistri íbúðarbyggð, 1-2 hæðir, með 50-75 íbúðum. Byggð skal aðlagast vel að landi og mynda sólrík og skjólgóð útisvæði fyrir íbúa. Opin svæði og stígar/hjólastígar skulu mynda góða tengingu milli eldri byggðar handan Suðurfells og hinnar nýju byggðar, og jafnframt við útivistarsvæði Elliðaárdals. Gert er ráð fyrir að halda í opið svæði innan þróunarsvæðisins líkt og skilgreint er í aðalskipulagi 2040 en opna á möguleika við að skilgreina það á nýjan hátt með komandi deiliskipulagi. Lýsingin var kynnt frá 27. júlí 2023 til og með 31. ágúst 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingar/umsögn: Ingveldur Halla Kristjánsdóttir dags. 3. ágúst 2023, Snorri Magnússon dags. 3. ágúst 2023, Eiður Sveinn Gunnarsson dags. 3. ágúst 2023, Minjastofnun Íslands dags. 4. ágúst 2023, Margrét Stefanía Þorkelsdóttir dags. 4. ágúst 2023ágúst 2023, Ása Elísa Einarsdóttir 6. ágúst 2023, Sigurður Bragason dags. 7. ágúst 2023, Katrín Helga Guðjónsdóttir dags. 7. ágúst 2023, Katrín María Sigurðardóttir, dags. 9. ágúst 2023, Fríða Björg Aðalsteinsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Guðmundur Björgvin Svafarsson, dags. 9. ágúst 2023, Valgerður Jóna Garðarsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Elínborg Auður Hákonardóttir, dags. 9. ágúst 2023, Valgerður Helgadóttir, dags. 9. ágúst 2023, Einar Ársæll Hrafnsson, dags. 9. ágúst 2023, Sigríður Steinunn Þrastardóttir, dags. 9. ágúst 2023, Anna Halla Birgisdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Ásgeir Erlendur Ásgeirsson, dags. 9. ágúst 2023, Stefán Ingi Guðjónsson, dags. 9. ágúst 2023, Karen Aradóttir, dags. 9. ágúst 2023, Guðrún S. Benediktsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Ólafur Gylfason, dags. 9. ágúst 2023, Guðbjartur Stefánsson, dags. 9. ágúst 2023, Óli Grétar Þorsteinsson, dags. 9. ágúst 2023, Þórdís Jóhannsdóttir Wathne, dags. 9. ágúst 2023, Örn Ægir Reynisson, 9. ágúst 2023, Ása Kristbjörg Karlsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Harpa Hrönn Frankelsdóttir, 9. ágúst 2023, Garðar Þröstur Einarsson, dags. 9. ágúst 2023, Ragnheiður Lóa Björnsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Linda Sólveig Birgisdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Sigurlaug Björg Lárusd. Blöndal, dags. 9. ágúst 2023, Guðrún Helga Theodórsdóttir, dags. 9. ágúst 2023, Höskuldur Einarsson, dags. 10. ágúst 2023, Pétur Marinó Jónsson, dags. 10. ágúst 2023, Inga Björg Kjartansdóttir, dags. 10. ágúst 2023, Sigurður Guðjón Jónsson, dags. 10. ágúst 2023, Sunneva Ósk Pálmarsdóttir, dags. 10. ágúst 2023, Þórbergur Már Sigurðsson, dags. 10. ágúst 2023, Gyða Dröfn Hannesdóttir, dags. 10. ágúst 2023, Sveinn Jóhannesson Kjarval, dags. 10. ágúst 2023, Sigríður Sigurðardóttir, dags. 10. ágúst 2023, Erna Sif Evudóttir, dags. 10. ágúst 2023, Eyjólfur Tómasson, dags. 10. ágúst 2023, Jónína Kristrún Snorradóttir, dags. 10. ágúst 2023, Linda Björk Pétursdóttir, dags. 10. ágúst 2023, Bjartey Ásmundsdóttir, dags. 10. ágúst 2023, Einar Viðar Gunnlaugsson, dags. 11. ágúst 2023, Heiðrún Arna Friðriksdóttir, dags. 11. ágúst 2023, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, dags. 11. ágúst 2023, Örn Ingólfsson, dags. 12. ágúst 2023, Jósep Valur Guðlaugsson, dags. 12. ágúst 2023, Jón Pétur Einarsson, dags. 14. ágúst 2023, Sigurjóna S. Sigurjónsdóttir, dags. 15. ágúst 2023, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 15. ágúst 2023, Sædís Guðríður Þorleifsdóttir, dags. 17. ágúst 2023, Hallgerður Guðlaugsdóttir, dags. 17. ágúst 2023, Anna Ólafsdóttir, dags. 17. ágúst 2023, Yrsa Rós Brynjudóttir, dags. 17. ágúst 2023, Bjarni Stefán Welbes, dags. 17. ágúst 2023, Veitur, dags. 18. ágúst 2023, Náttúrufræðistofnun Íslands, dags. 18. ágúst 2023, Arndís Björnsdóttir, dags. 18. ágúst 2023, Annetta Ragnarsdóttir, dags. 20. ágúst 2023, Elín Ásta Hallgrímsson, dags. 23. ágúst 2023, Skipulagsstofnun, dags. 23. ágúst 2023, Júlíana Lind Guðlaugsdóttir, dags. 24. ágúst 2023, Helga Kristín Gunnarsdóttir, dags. 24. ágúst 2023, Þórður Einarsson, dags. 24. ágúst 2023, Axel Björnsson, dags. 25. ágúst 2023, Björn Arnar Hauksson, 26. ágúst 2023, Rín Samía Raiss, dags. 27. ágúst 2023, Jónína Wilkins, dags. 28. ágúst 2023, Aðalbjörg Hlín Brynjólfsdóttir, dags. 28. ágúst 2023, Þorlákur Lúðvíksson, dags. 28. ágúst 2023, Bergey Hafþórsdóttir, dags. 28. ágúst 2023, Hallþór Jökull Hákonarson, dags. 29. ágúst 2023, Júlíus Geir Gíslason, dags. 29. ágúst 2023, Vilborg Ámundadóttir, dags. 29. ágúst 2023, skrifstofa umhverfisgæða, dags. 29. ágúst 2023, Steinþór Bjarni Grímsson, dags. 30. ágúst 2023, Katrín Þorsteinsdóttir, dags. 30. ágúst 2023, Málfríður Ómarsdóttir, dags. 30. ágúst 2023, Daniel G. Villarroel, dags. 30. ágúst 2023, Anna Sif Jónsdóttir, dags. 30. ágúst 2023, Stangaveiðifélag Reykjavíkur, dags. 30. ágúst 2023, Hollvinasamtök Elliðaárdalsins, dags. 30. ágúst 2023, Hans Steinar Bjarnason, dags. 30. ágúst 2023, íbúaráðs Breiðholts, dags. 30. ágúst 2023, Guðrún Stefanía Lárusdóttir, dags. 31. ágúst 2023, Áslaug Björk Eggertsdóttir, dags. 31. ágúst 2023, Eggert Óskarsson, dags. 31. ágúst 2023, Ingibjörg R. Þengilsdóttir,dags. 31. ágúst 2023, Einar Steingrímsson, dags. 31. ágúst 2023, Landvernd, dags. 31. ágúst 2023, Hildur Hjálmarsdóttir, dags. 31. ágúst 2023, Harpa Mjöll Gunnarsdóttir, dags. 31. ágúst 2023 og Andrea Fanney Jónsdóttir, dags. 31. ágúst 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. september 2023 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.