Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. júní 2023 þar sem sótt er um leyfi til þess að sameina í eina eign, breyta notkun og innrétta gistiheimili í flokki lV tegund farfuglaheimili fyrir alls 190 gesti í lokrekkjueiningum, ásamt veitingastað í flokki ll tegund c, einnig verður útliti breytt lítillega og klætt málmklæðningu húsið við Hverfisgötu 46, mhl.05, á lóð nr. 29 við Laugaveg.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.