Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. júní 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. júní 2023 þar sem sótt er um leyfi til þess að sameina í eina eign, breyta notkun og innrétta gistiheimili í flokki lV tegund farfuglaheimili fyrir alls 190 gesti í lokrekkjueiningum, ásamt veitingastað í flokki ll tegund c, einnig verður útliti breytt lítillega og klætt málmklæðningu húsið við Hverfisgötu 46, mhl.05, á lóð nr. 29 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. júlí 2023.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. júlí 2023, samþykkt.