Háskóli Íslands - Vísindagarðar - Viljayfirlýsing um hugmyndahús og frumkvöðlasetur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1037
18. nóvember, 2025
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2025 var lagt fram afgreiðslubréf, dags. 13. apríl 2023, vegna samþykktar borgarráðs s.d. á svohljóðandi tillögu borgarstjóra, dags. 11. apríl 2023: Lagt er til að borgarráð samþykki hjálögð drög að viljayfirlýsingu þar sem Reykjavíkurborg, Háskóli Íslands og Vísindagarðar Háskóla Íslands eru sammála um að greiða götu þess að nýsköpunar- og frumkvöðlasetur rísi á lóðum B og E á svæði Vísindagarða Háskóla Íslandsbyggt á fyrirmynd og hugmyndafræði Grósku hugmyndahúss. Gert er ráð fyrir að sömu aðilar, Gróska ehf. , komi að uppbyggingu og rekstri hinna nýju mannvirkja. Unnin verði tillaga að breytingu á deiliskipulagi á lóðunum, þróun á forsögn og samgöngumat, ásamt því að haldin verði samkeppni um hönnun bygginga. Einnig var lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa, dags. 25. maí 2023. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2025, um niðurfellingu málsins.
Mál fellt niður sbr. bréfi skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2025.
Svar

Mál fellt niður sbr. bréfi skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2025.