Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. febrúar 2022 var lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 29. nóvember 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar vegna lóðarinnar nr. 66 við Nauthólsveg. Í breytingunni felst afmörkun lóðar fyrir Flugstjórnarmiðstöð Reykjavíkur, stækkun á byggingarreit og aukningu á byggingarmagni, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 29. nóvember 2021. Einnig er lagt fram samgöngumat Verkís dags. í júní 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt bréfi skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2025, um niðurfellingu málsins.
Mál fellt niður sbr. bréfi skipulagsfulltrúa, dags. 31. október 2025.