Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Reykjavíkurborgar og Kópavogs um breytingu á deiliskipulagi fyrir Fossvogsbrú Reykjavíkurmegin. Í gildandi deiliskipulagi er leiðbeinandi lega göngu- og hjólastíga, áningarstaða og biðstöðva fyrir almenningsvagna sýnd á uppdrætti. Í tillögu að breytingu eru stígar, áningarstaðir og biðstöðvar uppfærðar í samræmi við þá hönnun sem liggur fyrir. Deiliskipulagsmörk breytast til að rúma að fullu landfyllingar við brúarendana og frágang á grjótgarði innan deiliskipulagsins, samkvæmt uppdr. Alta, dags. 11. maí 2023. Tillagan var auglýst frá 1. ágúst til og með 19. september 2023. Eftirtaldir sendu umsagnir: Veitur, dags. 14. ágúst 2023, Vegagerðin, 31. ágúst 2023, Umhverfisstofnun, dags. 5. september 2023, svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins, 5. september 2023, Isavia, dags. 6. september 2023, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, 15. september 2023, Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, dags. 18. september 2023, Náttúrustofnun Íslands, dags. 18.september 2023, Borgarlínuteymi, dags. 18. september 2023, Landsamtök hjólreiðamanna, dags. 19. september 2023, Samgöngustofu, dags. 19. september 2023 og Minjastofnun Íslands, dags. 20. september 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs.