Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
2. Ánaland 2-4 - BN057467 Sótt er um leyfi til þess að rífa sólskála og svalir á suðurhlið og byggja í
staðinn viðbyggingu með þaksvölum, þak yfir hluta af verönd 1. hæðar, opna inn í borðstofu,
endurnýja eldhús og fjarlægja veggi milli stofu og eldhúss í parhúsi nr. 2 á lóð nr. 2-4 við Ánaland.
Stækkun 1.3 ferm., 8.6 rúmm.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 28. mars 2023, samþykki meðlóðarhafa á aðaluppdráttum 101 og
102 dags. 28. mars 2023, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. apríl
2020 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. apríl 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl
2020.
3. Barmahlíð 51 - BN060964 Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir nýrri hurð, grafa frá og gera verönd
við suðurhlið íbúðar 0001 í íbúðarhúsi á lóð nr. 51 við Barmahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda í hús á afriti af teikningu A-101 dags 7. apríl 2022 umsögn
burðarvirkishönnuðar dags. 17. janúar 2023 og
yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 10. apríl 2001.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.