Álfabakki 12
Álfabakki 12
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1212
24. júní, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem lokað hefur verið fyrir stigaopi og stigi fjarlægður á milli fyrstu hæðar, 0101, og kjallara, 0003, og séreign breytt í tvær notkunareiningar, inngangshurð breytt og færð til ásamt nýjum breytingum þannig að innra skipulagi verði breytt undir starfsemi snyrtistofu sem var áður verslun í mhl. 0101 á 1. hæð í húsi á lóð nr. 12 við Álfabakka. Erindi fylgir samþykkir eiganda fasteignar mhl. 0101, dags. 6. mars 2023, lóðauppdráttur dags. 26. október 2018, mæliblað dag 11. nóvember 1981 og vottorð húsaskoðunar dags. 23. maí 2023.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
2. Brautarholt 20 - BN061457 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN056695, gerð klæðningar utan um
flóttastiga í bakgarði verði timburklæðning, þvert á stigaradíus við matshluta 1-3, hús á lóð nr. 18 við
Brautarholt.
Erindi fylgir bréf hönnuðar, dags. 6. september 2022 og yfirlit breytinga unnið á aðaluppdrætti erindis
nr. BN060633, samþykktur þann 1. mars 2022.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.