Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. mars 2023 var lögð fram fyrirspurn Andersen Sigurdsson arkitektar, dags. 28. febrúar 2023, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna lóðarinnar nr. 6 við Jöfursbás sem felst í að lóðin sem skilgreind er fyrir atvinnuhúsnæði verði að hluta til nýtt undir íbúðabyggingu, samkvæmt tillögu Andersen Sigurdsson arkitektar dags. 28. febrúar 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.