Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. febrúar 2023 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi íbúða, hæðarlegu lóðar við hús með þremur íbúðum og byggingu stakstæðrar bílgeymslu í vesturhorni lóðar sem tilheyra mun íbúð 01-0201 í húsi á lóð nr. 14 við Egilsgötu, samkvæmt uppdr. Arkþings, dags. 12. september 2018, br. 9. og 13. febrúar 2023. Einnig er lögð fram afstöðumynd og skuggavarpi Arkþings, dags. 13. febrúar 2023. Erindi var grenndarkynnt frá 20. mars 2023 til og með 24. apríl 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Leyla Eve og Sóley Þorgeirsdóttir, dags. 24. apríl 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 4. maí 2023 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.