Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi 1. hæðar í matshluta nr. 01 fyrir
segulómrannsóknarstöð, jafnframt er gerður nýr inngangur frá götu á norðurhlið húss nr. 26 á
lóð nr. 26-28 við Brautarholt.
Erindi fylgir: Yfirlit breytinga, greinargerð hljóðvistar dags. 17. febrúar 2023, afrit
fundargerðar húsfélags dags. 15. desember 2022. Umsögn samgöngudeildar í tölvupósti
dags. 26. apríl 2023.