Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
3. Depluhólar 4 - BN061601 Sótt er um leyfi til að breyta útliti á húsi og skipulagi lóðar, þ.e. tröppur upp
á svalir felldar út, gluggar síkkaðir og komið fyrir hurð í stað glugga á suðausturhlið, gluggar síkkaðir
og komið fyrir hurð á suðvesturhlið, lóð lækkuð, bætt aðgengi og umferðarleiðir innan lóðar og að húsi,
steypt setlaug og stoðveggir á lóðarmörkum húss á lóð nr. 4 við Depluhóla. Erindi fylgir umboð eiganda
dags. 6. október 2022, bréf eiganda, rökstuðningur vegna breytinga dags. 11. október 2022, samþykki
aðliggjandi lóðarhafa nr. 2 við Depluhóla og nr. 1 við Erluhóla. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á
afriti aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 12. júlí 1984. Útskrift úr gerðabók
embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn
skipulagsfulltrúa dags 20. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2023. Erindi fylgir samþykki nágranna,
skjalfært þann 17. apríl 2023. Gjald kr.13.200. BN061601
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.Sérstakt samráð skal
haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.