Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 328
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að nýju deiliskipulagi fyrir Veðurstofureit. Í tillögunni er komið fyrir nýrri íbúabyggð ásamt þjónustu á Veðurstofuhæð. Við gerð tillögunnar var unnið út frá bæði náttúrulegu yfirbragði Veðurstofuhæðar og núverandi fyrirkomulagi, svo sem helstu aðkomuleiða, veitumannvirkja og þjónustustarfsemi Veðurstofunnar. Leitast er við að ná fram og skapa heildstætt nýtt íbúðahverfi á miðsvæði skv. gild. aðalskipulagi ásamt þjónustu með sterkum vistvænum áherslum og hvötum í sem mestri sátt við núverandi borgarumhverfi í Hlíðum og Kringlu. Komið er fyrir nýrri 7m breiðri tengingu sem þjónar öllum virkum ferðamátum undir Bústaðaveg sem tengir saman norður–suður milli Stigahlíðar og Beykihlíðar/Birkihlíðar. Hæðir húsa, stakstæð eða í klösum ásamt samnýtingu rýma tekur mið af karaktereinkennum landsvæðisins. Bílastæðakröfur og bílastæðahús ásamt fyrirkomulagi á aðgengi ökutækja inn á íbúðareitinn gengur í aðalatriðum út á samnýtingu með Veðurstofunni. Núverandi heimreið af Bústaðavegi inn á reitinn verður lagfærð og aðlöguð aukinni umferð væntanlegra íbúa. Tillagan byggir undir virkt deilihagkerfi íbúa reitsins gagngert til að auka lífsgæði þeirra og annarra borgarbúa. Skilgreint náttúrulegt útivistarsvæði fyrir íbúa reitsins og nágranna næst reitnum er staðsett á suð-austurhluta reitsins. Útivistarsvæðið gegnir einnig mikilvægu hlutverki í náttúrulegri hringrás ofanvatnslausna á reitnum. Byggingarmagn á reitnum er skipt í þrennt á milli Græns húsnæðis framtíðarinnar, Variat - hagkvæms húsnæðis og Bjargs íbúðafélags. Gert er ráð fyrir íbúðum í miðlægu bílastæðahúsi sem gæti fjölgað á seinni stigum. Gert er ráð fyrir áframhaldandi starfsemi Veðurstofunnar á reitnum. Starfsemin muni alfarið færast yfir á lóð nr. 7 við Bústaðaveg. Nýbyggingarreitur undir skrifstofur vestan við núverandi byggingu verður útfærður í sér deiliskipulagsgerð. Byggingarreitur Veitna ohf. undir framtíðarstækkun kaldavatnsgeymis er staðsettur sunnan við hlið núverandi geymis ásamt nýjum aðkomuvegi að nýjum mælireit Veðurstofunnar og geislamælaskúr Geislavarna ríkisins, samkvæmt uppdráttum og skýringarmyndum ásamt skilmálum og yfirlitskorti Lendager, dags. 13. júní 2024, uppfært/breytt 26. nóvember 2024. Tillagan var auglýst frá 11. júlí 2024 til og með 25. september 2024. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. nóvember 2024.
Svar

Samþykkt með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins. sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Hér er komið skipulag fyrir um 200 íbúðir á Veðurstofuhæð fyrir fjölbreyttan hóp. Það byggir á niðurstöðu hugmyndasamkeppni um grænt húsnæði framtíðarinnar en ákveðið var að vinna áfram með tillögu dönsk-íslensku hönnunarstofunnar Lendager. Stefnt er að því að leysa meginhluta bílastæða í fjölnota bílastæðahúsi. Fyrir vikið verður yfirborðið aðlaðandi og aðgengilegra, grænna og öruggara. Samráð hefur verið haft við nágrenni um útfærslu verkefnisins þar sem komið var til móts við ýmsar ábendingar. Um er að ræða fyrsta stafræna deiliskipulagið á landinu sem er spennandi tilraunaverkefni í samstarfi við Skipulagsstofnun.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Vegna fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu um Veðurstofureit minna borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins enn og aftur á að huga þarf að innviðum þegar um er að ræða svo mikla fjölgun íbúa á þéttingarreitum. Nú anna skólar hverfisins ekki eftirspurn og íþróttaaðstaða mætti vera betri. Fjölga þarf rýmum verulega í leikskólum og grunnskólum hverfisins vegna hinnar miklu uppbyggingar sem fyrirhuguð er á Veðurstofureit og Kringlureit. Bent skal á að einungis nokkrir metrar eru á milli fyrirhugaðs uppbyggingarsvæðis og íbúabyggðar við Stigahlíð. Vegna mikils landhalla á svæðinu liggja umræddar fasteignir við Stigahlíð mun lægra en fyrirhugað uppbyggingarsvæði. Bygging 2-5 hæða fjölbýlishúsa hefði í för með sér stórfelld óæskileg grenndaráhrif fyrir umrædda íbúa við Stigahlíð og er því rétt að taka tillit til athugasemda þeirra. Mikið virðist vanta upp á að bílastæðamál séu leyst með fullnægjandi hætti í fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu. Hætt er við að íbúar hins nýja hverfis leitist við að leggja bifreiðum sínum í Stigahlíð og öðrum nærliggjandi hverfum, verði bílastæðamál ekki leyst með fullnægjandi hætti innan reitsins. Það gæti leitt til þess að umferðarþungi í næstu götum aukist til muna með óæskilegum afleiðingum. Tekið er undir áhyggjur Veðurstofunnar um að ekki sé nægilegt tillit tekið til starfsemi hennar í deiliskipulagstillögunni. Óskað er eftir því að í skipulagsvinnunni verði tekið tillit til athugasemda þessarar mikilvægu stofnunar.