Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 7. mars 2023, vegna nýs deiliskipulags fyrir Veðurstofureit. Í tillögunni sem lögð er til felst að koma fyrir nýrri íbúabyggð ásamt þjónustu á Veðurstofuhæð. Að greina núverandi horf Veðurstofuhæðar og næsta nágrennis svo byggja megi undir heildstætt nýtt íbúðahverfi á miðsvæði ásamt þjónustu með sterkum vistvænum áherslum í sátt við núverandi umhverfi. Að leita uppi styrkleika rýmisins á svæðinu og flétta saman við borgarsamhengið næst reitnum í Hlíðum og Kringlu. Að koma fyrir nýrri 7m breiðri tengingu sem þjónar öllum virkum ferðamátum undir Bústaðaveg og tengja saman norður–suðurás milli Stigahlíðar og Beykihlíðar/Birkihlíðar (Suðurver og Klettaskóli). Að skoða þróunar- og uppbyggingarmöguleika lóða á reitnum, hæðir húsa, stakstæð eða í klösum ásamt samnýtingu rýma. Að finna hæfilegt nýtingarhlutfall nýbygginga á reitnum. Að skoða bílastæðakröfur og bílastæðahús ásamt fyrirkomulagi á aðgengi ökutækja inn á íbúðareitinn sem gengur í aðalatriðum út á samnýtingu með Veðurstofunni.Að deilihagkerfið eigi að geta þjónað öllum íbúum reitsins.Að staðsetja 5-7 íbúa sambýli fyrir fatlaða. Að skilgreina útivistarsvæði fyrir íbúa reitsins og núverandi nágranna. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á reitnum skiptist á milli Græns húsnæðis framtíðarinnar á veðurhæðinni, Variat - hagkvæms húsnæðis og Bjargs íbúðafélags.Gert er ráð fyrir að starfsemi þjónustustofnunar á Veðurstofureit (Veðurstofa Íslands) muni alfarið færast yfir á lóð nr. 7 við Bústaðaveg með nýbyggingarreit vestan við núverandi byggingu. Byggingarreitur Veitna ohf. undir framtíðarstækkun kaldavatnsgeymis verður staðsettur sunnan við hlið núverandi geymis. Einnig er lögð fram húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur frá 2021, skýrsla 208, og fornleifaskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur frá 2022, skýrsla 209. Lýsingin var kynnt frá 30. mars 2023 til og með 4. maí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingu/umsögn: Umhverfisstofnun, dags. 31. mars 2023, Bjarni V. Guðmundsson, dags. 1. maí 2023, Skipulagsstofnun, dags. 27. apríl 2023, Vegagerðin, dags. 27. apríl 2023, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, dags. 3. maí 2023, Veitur, dags. 3. maí 2023, Manga lögmenn f.h. eigendur fasteigna að Stigahlíð 87, 89, 91, 93, 95 og 97, dags. 4. maí 2023, íbúaráð Miðborga og Hlíða, dags. 4. maí 2023 og Minjastofnun Íslands, dags. 10. maí 2023.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.