Eirhöfði 1
Eirhöfði 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1214
8. júlí, 2025
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 4 -7 hæða fjölbýlishús, fjögur stigahús með 72 íbúðum, sem verða Eirhöfði 3 og 5, Steinhöfði 2 og 4, ásamt bílakjallara með 88 bílastæðum, og verður fyrri áfangi fjölbýlishúsa á lóð nr. 1 við Eirhöfða. Erindi fylgir greinargerð aðalhönnuðar dags. 21. febrúar 2023, hljóðvistargreinargerð frá Myrru dags. 14. júní 2022, brunahönnun frá Eflu dags. 23. febrúar 2023 og varmatapsrammi dags. 21. júní 2022. Einnig fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2023. Stærð, A-rými: 11.026,3 ferm., 33.483,7 rúmm. B-rými: 402,6 ferm.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera
lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr.
greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði
við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar
verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um
staðsetningu búnaðarins.Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna
jarðvinnu.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.