Eirhöfði 1
Eirhöfði 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 mánuðum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1202
21. mars, 2023
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 4 -7 hæða fjölbýlishús, fjögur stigahús með 75 íbúðum, mhl. 01 og 02, ásamt bílakjallara með 40 bílastæðum, og verður fyrri áfangi fjölbýlishúsa á lóð nr. 1 við Eirhöfða. Erindi fylgir greinargerð aðalhönnuðar dags. 21. júní 2022, hljóðvistargreinargerð frá Myrru dags. 14. júní 2022, brunahönnun frá Eflu dags. 23. febrúar 2023 og varmatapsrammi dags. 21. júní 2022. Einnig fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2023. Stærð, mhl. 01: 4.641,2 ferm., 13.847,4 rúmm. Mhl. 02: 2.958,9 ferm., 9.062,8 rúmm. Mhl. 03: 1.263,8 ferm., 3.374,3 rúmm.
Svar

Samþykkt.
14. Fossaleynir 6 - BN061837
Sótt er um leyfi til þess að breyta notkun og innra skipulagi vörugeymslu, innrétta
golfhermisal með afgreiðslu og veitingarsölu með aðkeyptar veitingar, skrifstofur,
starfsmannarými og geymslur í atvinnuhúsi á lóð nr. 6 við Fossaleyni.
Erindi fylgir greinargerð verkfræðistofunnar Örugg 3290-001-GRG-001-V01 dags. 28. febrúar
2023 og yfirlit breytinga á aðaluppdráttum samþykktum 23. febrúar 2010.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.