Fyrirspurn
Grjótháls 7-11 - tímabundin afnot af borgarlandi - umsagnarbeiðni - USK23020123 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lagt fram erindi skrifstofu borgarlandsins, dags. 6. febrúar 2023, þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar G7-11 fasteignafélags ehf. um tímabundin afnot af borgarlandi á grasfleti milli Grjóthálsar og Vesturlandsvegar undir bílastæði fyrir lóð nr. 7-11 við Grjótháls. Einnig er lögð fram greinargerð, ódags., og uppdráttur T.ark arkitekta dags. 15. desember 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. febrúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. febrúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa Grjótháls 7-11