Breiðagerði 4 - breyting á deiliskipulagi - SN210405 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Vigfúsar Halldórssonar dags. 31. maí 2021 ásamt greinargerð Stefáns Auðuns Stefánssonar dag
Breiðagerði 4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 905
23. febrúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Breiðagerði 4 - breyting á deiliskipulagi - SN210405 Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Vigfúsar Halldórssonar dags. 31. maí 2021 ásamt greinargerð Stefáns Auðuns Stefánssonar dags. 7 janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 4 við Breiðagerði. Í breytingunni felst að í stað hangandi stálsvala utan á kvistvegg komi verönd sem hvílir á burðavirkjum þaks yfir stofu, samkvæmt uppdr. Vigfúsar Halldórssonar, dags. 13. desember 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. janúar 2023 til og með 13. febrúar 2023. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Gísli Einarsson og Sigrún Benediktsdóttir, dags. 12. febrúar 2023. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. febrúar 2023, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.