Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta veitingastað á annarri hæð,
þ.e. rekstur rýmis 01-0208 verði flokkur II, teg. a, fyrir 60 gesti í sal og sólskála og veggur í
eldhúsi færður, jafnframt er notkunareiningum fjölgað í húsi á lóð nr. 16 við Grandagarð.
Erindi fylgir gildandi aðaluppdrættir erindis BN061211, séruppdrættir loftræsingar nr. L-30B
og L-32B, dags. 24. janúar 2023, bréf hönnuðar dags. 25. janúar 2023 og samþykki
skipulagsfulltrúa Faxaflóahafna dags. 11. nóvember 2022.