Frestað. Vísað til athugasemda.
7. Eirhöfði 7 - BN061148 Sótt er um leyfi til að byggja steypt fjölbýlishús með 96 íbúðum, í
fjórum byggingum ásamt bílgeymslu í einum matshluta, byggingarnar bera merkingu A-B-C
og D og skiptist svo, í stigagangi A eru 21 íbúð á 4-6 hæðum, í stigagangi B eru 30 íbúðir á 7
hæðum, í stigagangi C eru 28 íbúðir á 6 hæðum og í stigagangi D eru 17 íbúðir á 6 hæðum,
geymslur, tæknirými og bílgeymsla er í kjallara matshluta nr. 01 og inngarði bygginga, öll þök
húsa eru flöt og útveggir einangraðir og klæddir álklæðningu að utanverðu á lóð nr. 7 við
Eirhöfða.
Stærð: 14.243,8 ferm., 40.880,7 rúmm.
Erindi fylgir greinargerð um aðgengi dags. 8. desember 2022, greinargerð um einangrun,
öryggismál og reiknuð U-gildi húsa 7A, 7B, 7C og 7D, skráð þann 16. nóvember 2022,
skýringa teikningar hönnuðar, afrit af teikningu skipulagi lóðar og greingerð um ábyrgðarsvið
hönnuða. Erindi fylgir greinargerð brunahönnuðar dags. 17. nóvember 2022. Gjald kr.12.600.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 8. desember 2022 fylgir
erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 8. desember 2022.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í
samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á
byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn
þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
8. Fossvogsvegur 8 - BN061807 Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN058359 þannig að
staðföngum er breytt, tröppur úr kjallara eru færðar, bætt við steyptum vegg við skábraut í
kjallara og gluggum breytt í fjölbýlishúsi á lóð nr. 8 við Fossvogsveg.
Stærð eftir breytingu, A-rými: 4.266,6 ferm., 13.451,2 rúmm.
B-rými: 4.455,8 ferm.