Fyrirspurn
Gaukshólar 2 - breyting á hverfisskipulagi - USK22122893 Lögð fram umsókn húsfélagsins að Gaukshólum 2, dags. 13. desember 2022, um breytingu á hverfisskipulagi Breiðholts, hverfi 6.3 Efra Breiðholt, vegna lóðarinnar nr. 2 við Gaukshóla. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að koma fyrir djúpgámum á lóð, samkvæmt tillögu, ódags. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra.