Depluhólar 4 - síkka glugga og bæta við hurðum - BN061601 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. október 2022 þ
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 905
23. febrúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Depluhólar 4 - síkka glugga og bæta við hurðum - BN061601 Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. febrúar 2023 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. október 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta útliti á húsi og skipulagi lóðar, þ.e. tröppur upp á svalir felldar út, gluggar síkkaðir og komið fyrir hurð í stað glugga á suðausturhlið, gluggar síkkaðir og komið fyrir hurð á suðvesturhlið, lóð lækkuð neðan við botnplötu, bætt aðgengi og umferðarleiðir innan lóðar og að húsi, steypt setlaug og stoðveggir á lóðarmörkum húss á lóð nr. 4 við Depluhóla. Einnig var lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2022. Erindi er nú lagt fram að nýju ásamt uppfærðum uppdráttum, dags. 22. nóvember 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. febrúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 23. febrúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Depluhólar 4