Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 131
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 3. mars 2022:
Skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar leggur til að skipulags- og samgönguráð samþykki eftirfarandi sérákvæði fyrir umferð innan lóðar við Úlfarsbraut 126: · Að einstefna verði til austurs á akbraut á austurhluta lóðarinnar, norðan hússins. · Að fimm bílastæði norðan hússins verði merkt sem stæði fyrir hreyfihamlaða. · Að tvö bílastæði norðan hússins verði merkt sem stæði fyrir hópbifreiðar. · Að á svæði við miðja lóðina, norðan hússins og sunnan við Gerðarbrunn 16 - 26, verði að hámarki heimilt að leggja ökutækjum í 10 mínútur í senn í almenn stæði. Ofangreindar ráðstafanir verði merktar með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingum í samræmi við reglugerð nr. 285/1995, um umferðarmerki og notkun þeirra, með áorðnum breytingum. Í samræmi við ákvæði 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, hefur tillagan verið borin undir og hlotið samþykki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 1.  mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
(C)    Ýmis mál
Svar

(C)    Ýmis mál

101 Reykjavík
Landnúmer: 102475 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023450
Síðasta markaðsverð
64.000.000 kr.
Fjölbýli · 72 m² · 28.05.2025
Kaupskrá 3 eignir
64.000.000 kr. 28.05.2025
Fjölbýli · 72 m² · 1 herb. · bygg. 1931 · HMS
67.500.000 kr. 06.11.2023
Fjölbýli · 83 m² · 1 herb. · bygg. 1931 · HMS
42.200.000 kr. 01.04.2020
Fjölbýli · 76 m² · 2 herb. · bygg. 1931 · HMS