Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 16. mars 2022:
Skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar leggur til að skipulags- og samgönguráð samþykki eftirfarandi sérákvæði fyrir umferð: 1. Að óheimilt verði að leggja ökutækjum við norðurkant Seljavegar milli Nýlendugötu og Vesturgötu. 2. Að á Vesturgötu verði tvístefna milli Ánanausta og innkeyrslna við Vesturgötu 64 og 69. Framangreint verði merkt með viðeigandi umferðarmerkjum í samræmi við reglugerð nr. 289/1995, um umferðarmerki og notkun þeirra, með áorðnum breytingum. Í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, hefur tillagan verið borin undir og hlotið samþykki lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur skipulags- og samgönguráðs án staðfestingar borgarráðs í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.