/Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi tillögu, varðandi íbúa við Hlemm Mál nr. US220026 Fulltrúi Flokks fólksins leggur til að fundinn verði staður fyrir djúpgáma við Hlemm
Fulltrúa Flokks fólksins hefur borist ábendingar og kvartanir vegna innheimtu Bílastæðasjóðs. Kvartað er yfir óvægnum aðferðum þar sem fólk upplifir jafnvel að verið sé að leiða sig í gildru með því að hafa merkingar ábótavant. Margt er að breytast í miðbænum og ekki allir átta sig á þessum breytingum enda breytingar örar. Sums staðar eru merkingar ekki nógu góðar eða hreinlega ábótavant t.d. þar sem er algert stöðubann. Einnig eru víða framkvæmdasvæði sem byrgja sýn.Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að sjá sundurliðað yfirlit yfir þá staði sem mest er sektað vegna stöðubrots.
Svar
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, bílastæðasjóðs.