/Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands, um byggingarmagn lóða þar sem bensínstöðvar munu víkja, umsögn Mál nr. US210345 Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfu
Samkvæmt skipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið stendur til að setja Sæbraut og Miklubraut í stokk á tímabilinu 2023 - 2026. Á Sæbraut verður á framkvæmdatíma gert ráð fyrir því að umferð um Sæbraut verði breytt í 1 plús 1 í stað 2 plús 2. Óljóst er hvort það sama gildi um Miklubraut en þó er ljóst að umferð mun þrengjast mjög á þessum tíma og a.m.k. á einhverjum tímapunkti í 1 plús 1. Í þeim hugmyndum sem kynntar hafa verið er gert ráð fyrir því að Suðurlandsbraut verði með tilkomu Borgarlínu breytt í 1 plús 1 í stað 2 plús 2. Líklega munu þær breytingar skarast í tíma við framkvæmdir við Sæbraut og Miklubraut. Í ljósi þessa: Hefur verið kannað hvaða áhrif þetta hefur á umferð og hafa verið skipulagðar einhverjar mótvægisaðgerðir til að greiða fyrir umferð á framkvæmdatíma?
Svar
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.