/Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn, um kostnað vegna skýrslu Mál nr. US220022 Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um heildarkostnað greiningarvin
Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um heildarkostnað greiningarvinnu og skýrslugerðar umhverfis- og skipulagssviðs um áhrif hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkur á ferðatíma Strætó. Um var að ræða innanhúsvinnu. Óskað er eftir upplýsingum um tímafjölda sem fór í verkið og annan kostnað sem og heildarkostnað. Beðið var um verkið af meirihlutanum og Strætó sem hafði áhyggjur af því að lækkun hámarkshraða myndi hægja á Strætó.
Svar
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.