Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 126
Annað
Fyrirspurn
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn, um kostnað vegna skýrslu         Mál nr. US220022 Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um heildarkostnað greiningarvinnu og skýrslugerðar umhverfis- og skipulagssviðs um áhrif hámarkshraðaáætlunar Reykjavíkur á ferðatíma Strætó. Um var að ræða innanhúsvinnu. Óskað er eftir upplýsingum um  tímafjölda sem fór í verkið og annan kostnað sem og heildarkostnað. Beðið var um verkið af meirihlutanum og  Strætó sem hafði áhyggjur af því að lækkun hámarkshraða myndi hægja á Strætó. Frestað.