Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 3. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 3B við Veltusund. Í breytingunni felst að afmarkaður er nýr byggingarreitur í porti á 1., 2. og 3. hæð auk kjallara, samkvæmt uppdr.
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 29. september 2016. Tillagan var auglýst frá 2. janúar til og með 13. febrúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar