Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2019 var lögð fram fyrirspurn HALAL ehf. dags 2. júlí 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar á lóðinni nr. 3b við Veltusund. Breytingin felur í sér aukið byggingarmagn á 3. hæð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júlí 2019.