Lögð fram umsókn M fasteigna ehf., mótt. 20. júlí 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina 2-6 við Kirkjustétt. Í breytingunni felst að upphaflegum byggingarreit er skipt í þrjú hús sem geta orðið 1 - 3 hæðir. Hluti bygginga innan reitsins geta því orðið allt að 3 hæðir í stað 2 áður. Bætt er við heimild til að gera íbúðir á 2. - 3. hæð húsa 1 og 2. Einnig er skilmálum um bílastæði breytt og bætt við skilmálum um frágang lóðar, samkvæmt uppdr.
VA arkitekta ehf.
, dags. 20. júlí 2017. Einnig er lagt fram samþykki eigenda, mótt. 20. júlí 2017.