Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lögð fram umsókn M fasteigna ehf., mótt. 21. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2-6 við Kirkjustétt. Í breytingunni felst að að hækka húsið um eina hæð og gera að hámarki 20 íbúðir á 2. og 3. hæð ásamt endurskoðun á bílastæðaskilmálum á lóð, samkvæmt uppdrætti
VA arkitekta ehf.
, dags. 31. ágúst 2016. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt uppdrætti VA arkitekta ódags. sem sýnir fyrirkomulag og fjölda íbúða.