Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2017 var lögð fram fyrirspurn Sturla Þórs Jónssonar f.h. HBH byggir ehf. , mótt. 10. ágúst 2017, um að breyta notkun 2. hæðar hússins á lóð nr. 10 við Bíldshöfða úr verslun og þjónustu í gististað, samkvæmt teikningu teiknistofunnar Torgið, dags. 26. ágúst 2003. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. október 2017.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017 samþykkt.