Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. október 2017 var lögð fram fyrirspurn Þorbjargar Bergþórsdóttur, mótt. 16. ágúst 2017, um rekstur á veitingaverslun í verslunarhúsnæði að Skólavörðustíg 3. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. október 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017.