Lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 21. júní 2018 um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 2 við Norðurbrún. Í breytingunni felst að rífa núverandi verslunarhús og byggja nýtt íbúðarhús með verslun að hluta til á 1., 2. hæðin verður inndreginn frá suðvestri. Húsin verða því tvær hæðir og kjallari með verslun - og þjónustu á götuhæð og íbúðum á 1. og 2. hæð, samkv. uppdráttum
THG Arkitekta ehf.
dags. 4. júní 2018. Einnig er lagt fram skuggavarp dags. 4. júní 2018. Einnig er lögð fram ábending Bjarna Pálmasonar dags. 16. október 2018.
Svar
Umsækjandi hafi samband við embættið vegna skuggavarpsuppdrátta.