Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. október 2018 var lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 21. júní 2018 um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð nr. 2 við Norðurbrún. Í breytingunni felst að rífa núverandi verslunarhús og byggja nýtt íbúðarhús með verslun að hluta til á 1., 2. hæðin verður inndreginn frá suðvestri. Húsin verða því tvær hæðir og kjallari með verslun - og þjónustu á götuhæð og íbúðum á 1. og 2. hæð, samkv. uppdráttum
THG Arkitekta ehf.
dags. 4. júní 2018. Einnig er lagt fram skuggavarp dags. 4. júní 2018. Einnig er lögð fram ábending Bjarna Pálmasonar dags. 16. október 2018. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embættið vegna skuggavarpsuppdrátta, og er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði
THG Arkitekta ehf.
dags. 22. október 2018 og leiðréttum skuggavarpsuppdrætti 4. júní 2018 síðast breytt 22. nóvember 2018.
Svar
Samþykkt að framlengja athugasemdarfrest til 12. desember 2018 og auglýsa sérstaklega leiðrétt skuggavarp í samræmi við minnisblað THG Arkitekta ehf. dags. 22. október 2018.