Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn Ögmundar Ásbjörnssonar Reykdal, mótt. 18. október 2016, um að setja svalir á austurhlið hússins á lóð nr. 22 við Nýlendugötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. nóvember 2016.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2016.